Öryggi við norðurljósaupplifun

Verið örugg við leit ykkar að norðurljósum.

Ætlarðu að fara að eltast við á norðurljósin?

Miðnætursólin hefur kvatt í bili og við taka vetrarmánuðirnir sem með sínu myrkvi gefa okkur oft betra tækifæri til að sjá norðurljósin.
Norðurljósatímabilið er venjulega frá lokum ágúst til loka apríl. Það þarf að vera dimmt úti og himinninn verður að helst að vera heiðskír til að við getum séð norðurljósin. Best er að halda sig fjarri ljósmengun eins og  borgarljósum.

  • Ekki standa út á vegi til að taka myndir.
    Í myrkrinu er nánast ómögulegt fyrir aðra ökumenn að sjá þig og þú gætir orðið fyrir bíl. Veldu frekar öruggan stað langt frá veginum til að taka þínar myndir.
  • Gakktu úr skugga um að þú sért að leggja bílnum þínum á skilgreindu bílastæði.
    Jafnvel þótt ljósin dansi fyrir ofan þig, þá er undir EKKI neinum kringumstæðum leyfilegt að stoppa bílinn mitt á veginum eða á óöruggum stað við vegkantinn. Vegirnir hér á Íslandi eru oft þröngir svo það getur verið afar víðsjárvert að stoppa inni á veginum eða of nálægt honum.
    Í myrkrinu er erfitt fyrir aðra ökumenn að sjá bíl sem er lagður á veginum eða við vegkantinn. Það getur leitt til sektar eða, það sem verra er, þú getur orðið valdur að slysi.
  • Dimmar, bjartar nætur eru oft kaldar.
    Klæðið ykkur hlýlega í lögum. Þannig er auðvelt að taka af eða bæta við lögum ef ykkur verður of heitt eða of kalt.
  • Að leita að norðurljósum getur tekið tíma og krefst þolinmæði .
    Þið gætuð viljað eyða tíma í að njóta sýningarinnar, svo takið með ykkur mat, heita drykki og hlaðinn síma.
    Ef þú ert óheppinn og ljósin sjást ekki, geturðu að minnsta kosti notið góðs matar og drykkjar á meðan þú nýtur íslenska næturhiminsins.
  • Verið varkár þegar þið kannið ókunnug svæði í myrkri.
    Það er auðvelt að stíga ofan í holur, renna á ís eða lenda í öðrum hættum sem geta verið erfiðar að sjá í myrkrinu. Það er skynsamlegt að taka með sér höfuðljós eða vasaljós, annað en símaljósið, í ferðalagið.
  • Veður og aðstæður á vegum:
    Veðrið getur breyst með stuttum fyrirvara hér á Íslandi svo fylgist reglulega með veðurspá og færð.
    Þú getur fylgst með veðrinu á www.en.vedur.is og færðinni á www.road.is áður en lagt er af stað.

Með góðri skipulagningu og smá heppni gætirðu hugsanlega séð dásamleg norðurljós.
Hér er hægt að sjá norðurljósa- og skýjahuluspá: https://veður.is/veður/spár/aurora/ eða https://auroraforecast.is/ 

Það er þess virði að bíða eftir norðurljósunum, en það er aldrei þess virði að stofna eigin öryggi eða öryggi annarra í hættu.